Saturday, November 10, 2007

Jæja...

Afsakið fyrir lélegasta blogg aldarinnar. Reyni að standa mig betur héðan í frá...

Aaalllavega... Lífið í Tokyo gengur sinn vanagang, er á fullu í skólanum að reyna að læra og gera e-ð að viti svo ég komi ekki heim ótalandi eins og fáviti. Þetta hefur gerst síðan í síðustu færslu:

Fór á Talib Kweli tónleika 15. október, það var aaaðeins of gaman!
Atli vinur minn kom í stutta heimsókn, tsjekkuðum Tokyo Motor Show meðal annars
Fór í Halloween partý dressaður upp sem P.Diddy, sennilega í fyrsta og síðasta skipti sem P. Diddy er túlkaður sem stór, hvítur fokker
Það var stórt festival í skólanum um daginn, þar fór ég meðal annars á 4 tíma fegurðarsamkeppni og rækilegt fyllerí eftir það :)
The Roots 18 janúar í Tokyo. Þar verð ég
Pantaði pizzu, þurfti að velja milli pizzasósu og mæjónes á botninn! Japanir eru skrýtnir...

Ég er að koma upp myndasíðu as we speak... Eeeen ég er latur og sennilega verður hún uppi eftir 2-3 daga

Lög sem halda mér gangandi þessa dagana:

Lupe Fiasco - Superstar
Saigon feat. Jay-Z & Swizz Beats - Come on Baby (remix)
Nas - Surviving the times

Og ef þið eruð ekki búin að tsjekka nýja Radiohead diskinn eruð þið aumingjar með hor

That'll be all... for now

4 comments:

Kristín said...

Ferskasta bloggið hérna megin Andesfjallanna. Eða er það kannski þarna megin þeirra? Eníhú, ætlaði bara að vera kurteis og kvitta fyrir innlitið og skella á þig kveðju fyrst ég missi alltaf af ykkur japansförum á MSN. Keep on Truckin'.

Anonymous said...

Myndiiir! myndiiir! ;D
Ph-gildið í e-u ójafnvægi? ;P
hefurðu annars e-ð frétt af súru og ljótu? nei bara spyr! :P

Hættu svo að láta þér e-ð detta í hug að vera lengur þarna ;) Ég þarf þig í ýmiss konar aðgerðir heima á Íslandi!
-knús :)

Edda Sif

Anonymous said...

Hvernig varstu sem P.Diddy, í jakkafötum með tannstöngul eða?...og ég segi að þú prófir þetta majones-pizzudæmi upp á flippið...
kv. Tommi

Steinn Ingi said...

Takk fyrir kommentið Kristín :)
Ég reyni að trukkast áfram :D

Ég reyni að koma heim Edda mín ;)

Ég var sem sagt í Sean John fötunum mínum og Sean John sólgleraugun með tannstöngul. Svo ákvað ég að gata á mér eyrun og var með gay ass bling í eyrunum :D

Ég mun sennilega enda á majópizzu :S